Sunnudagar eru barnadagar og þá er alltaf eitthvað um að vera fyrir börn og fjölskyldur þeirra í Gerðubergssafni og aðalsafni.
Sunnudaginn 27. nóvember verður jólasögustund við kertaljós í Gerðubergssafni. Sögustundin hefst kl. 14.00 og er boðið upp á piparkökur og mandarínur. Í aðalsafni kynna Spilavinir alls konar spil fyrir alla, konur og karla, krakka með hár og karla með skalla. Dagskráin hefst kl. 15.00.
Allir velkomnir og aðgangur ókeypis