Hugsa sér frið...Skapandi smiðja og notaleg samverustund fyrir börn og fullorðna verður haldin í Viðeyjarstofu laugardaginn 3. desember frá kl. 14:00.Viðburðurinn er unnin út frá Friðarsúlu Yoko Ono og orðunum HUGSA SÉR FRIÐ sem áletruð eru á 24 tungumálum á súluna sjálfa. Hugmyndir um frið, jöfnuð og samkennd eru uppsprettan í skapandi rit- og teiknismiðju sem Bryndís Björgvinsdóttir stýrir. Bryndís les upp úr bók sinni Flugan sem stöðvaði stríðið (sem hlaut Íslensku barnabókaverðlaunin 2011) en í kjölfarið fær hver og einn að reyna á eigið ímyndunarafl í orði og leik á eigin móðurmáli. Smiðjan er unnin í samstarfi við Móðurmál: Félag tvítyngdra barna en markmið félagsins er að gefa tvítyngdum börnum tækifæri til að læra og viðhalda eigin móðurmáli og menningu. Einnig mun Mazen Maarouf lesa ljóð sín og hvetja til umræðna meðal áhugasamra. Mazen er palestínskur landflótta-rithöfundur sem hefur aðsetur í Reykjavík næstu tvö árin í tengslum við þátttöku borgarinnar í ICORN (International Cities of Refuge Network).Hér er einstakt tækifæri fyrir fjölskyldu og vini til að sameinast yfir gefandi og skapandi verkefni og njóta friðar og samveru í notalegu umhverfi. Kaffihúsið í Viðeyjarstofu verður opið allan daginn. Fyrir áhugasama verður boðið upp á göngu að Friðarsúlunni að smiðjunni lokinni.
14:00 Upplestur14:30 Rit-og teiknismiða15:45 Kynning á afrakstri rit og teiknismiðju16:30 Leiðsögn að Friðarsúlu Yoko OnoFerja siglir frá Skarfabakka kl. 13:15, 14:15 og 15:15 og frá Viðey kl. 13:30, 14:30, 15:30, 16:30 og í kjölfar leiðsagnarinnar að Friðarsúlunni. Ferjutollur er kr. 1.000 fyrir fullorðna og kr. 500 fyrir börn (6 – 18 ára) og ókeypis fyrir börn 6 ára og yngri. Dagskráin er samstarfsverkefni Viðeyjar, Borgarbókasafnsins og Listasafns Reykjavíkur.