Sunnudaginn 4. desember var nafn á listaverki sem unnið var af Söguhring kvenna gert opinbert við notalega athöfn í aðalsafni. Rithöfundurinn Sjón kynnti nafnið á verkinu og þá tillögu sem bar sigur úr býtum. Dot.com skal verkið heita. Lilja M. Möller á heiðurinn af nafninu og hlaut hún Miðbæjarkort að launum.
Útlínur verksins markast af Reykjavík sjálfri og er verkið því nýtt og litríkt kort af borginni. Í rökstuðning dómnefndar segir m.a.Dot.com er alþjóðlegt og líkast til auðskilið til hvar sem er í heiminum og á þann hátt má líta á það sem eins konar tákn sem allir geta sameinast um og fundið sig í. Nafnið hefur á sér hressilegan blæ, er ákaflega einfalt og hlutlaust og virðist í fyrstu ekki segja mikið. En í einfaldleika sínum gefur það svo margt til kynna og er hægt að túlka á svo marga vegu. Dot vísar í punktana sem mynda listaverkið og um leið í þessa mörg þúsund ára gömlu aðferð frumbyggja Ástrala í listsköpun og tjáningu sem notuð var við gerð listaverksins. Nafnið hefur einnig skýra skírskotun í internetið og tengir þannig saman hið forna og hið nýja. Listaverkið er búið til úr mörgum punktum. Stakur punktur má sín e.t.v. ekki mikils en er þó svo mikilvægur því þegar margir, litskrúðugir, litlir, stórir og fjölbreyttir punktar koma saman mynda þeir þessa heild sem er svo falleg. Þannig eru punktarnir sjálfir eins konar tákn fyrir okkar fjölbreytta samfélag og einstaklingana í því og ekki síður þá sýn að saman er hægt að skapa svo stórkostlega hluti. Og svo skemmtilega vill til að orðið „com“ er forskeyti í latínu sem hefur merkinguna „sam“ eins og t.d. í orðunum samfélag, sameining, samkennd og þannig styður nafnið enn frekar þessa hugmynd um að styrkurinn og fegurðin felist í að gera hlutina saman. Dot.com lýsir einnig ágætlega hugmyndafræðinni á bak við gerð listaverksins. Markmiðið með listaverkinu var náttúrulega að skapa fallegt verk en ekki síður að búa til grundvöll samvinnu og samveru og sameiningar fjölbreytts hóps kvenna. Á sama tíma fengu þátttakendur tækifæri til að setja sitt sérstaka mark, sinn sérstaka punkt á verkið. Framlag hverrar og einnar konu er mikilvægt og saman myndar vinna þeirra og sköpun þessa fjölbreyttu og fallegu heild.
Eftir að nafnið hafði verið gert opinberg flutti Jitka Stara sönglög á 6 tungumálum við undirleik Marie Huby og loks lauk Anna Kristinsdóttir, mannréttindastjóri Reykjavíkurborgar athöfninni með stuttri tölu þar sem hún þakkaði fyrir listaverkið, en það er gjöf Söguhringsins til Mannréttindaskrifustofu Reykjavíkur. Verkið er tileinkað fjölmenningarsamfélaginu og sagði Anna að það myndi ferðast á milli stofnana Reykjavíkurborgar og vekja þannig athygli á því.
Dot.com
Lilja M. Möller ásamt Ania Wozniczka og Kristínu Vilhjálmsdóttur umsjónarmanna Söguhrings kvenna
Sjón
Jitka Stara og Marie HubyDot.com var unnið síðastliðinn vetur af konunum í Söguhring kvenna undir leiðsögn Lilianne Vorstenbosch, myndlistakennara, en Söguhringur kvenna er samstarfsverkefni Borgarbókasafnsins og Samtaka kvenna af erlendum uppruna. Ákveðið var að efna til samkeppni um nafn á listaverkið og var hægt að senda inn tillögur til 1. september.