Borgarbókaverði barst einkar ánægjulegur tölvupóstur frá ánægðum notanda Borgarbókasafns.
Heil og sæl.Ég má til með að senda þér kveðju og þakka enn og aftur fyrir frábæra þjónustu Borgarbókasafnsins. Borgarbókasöfnin eru yndisleg heim að sækja, þar er hlýlegt viðmót og gott að vera. Úrval bóka, tímarita, hljóðbóka, tónlistar ofl.kemur mér sífellt á óvart.Upplýsingar á rafrænu formi verða líka sífellt betri í gegnum Gegni og svo áminningar eins og sú sem mér var að berast í morgun.
Ég segi segi því TAKK og óska þér góðrar aðventu.
Og við segjum nú bara TAKK fyrir okkur :o).