Miðvikudaginn 14. desember var gert opinbert hvaða bækur hljóta tilnefningar í ár til Fjöruverðlaunanna, bókmenntaverðlauna kvenna. Tilnefningin fór fram í aðalsafni, Tryggvagötu 15.
Tilnefndar voru þrjár bækur í hverjum flokki, alls níu verk.
Í flokki fagurbókmennta voru tilnefndar bækurnar Jarðnæði eftir Oddnýju Eir Ævarsdóttur, Kanill eftir Sigríði Jónsdóttur og Jójó eftir Steinunni Sigurðardóttur.
Í flokki barna- og unglingabóka voru tilnefndar bækurnar Flugan sem stöðvaði stríðið eftir Bryndísi Björgvinsdóttur, Með heiminn í vasanum eftir Margréti Örnólfsdóttur og Gegnum glervegginn eftir Ragnheiði Gestsdóttur.
Í flokki fræðibóka voru tilnefndar bækurnar Mannvist: Sýnisbók íslenskra fornleifa eftir Birnu Lárusdóttur, Nútímans konur eftir Erlu Huld Halldórsdóttur og Ríkisfang: Ekkert eftir Sigríði Víðs Jónsdóttur.
.