Í haust kom í heimsókn í aðalsafn Borgarbókasafnsins breskur maður að nafni Martyn Lowe, sem er bókavörður, friðarsinni og meðlimur í samtökunum Information for Social Changes. Lowe fékk leiðsögn um safnið frá starfsmanni þar sem farið var stuttlega yfir sögu þess og starfsemi og einnig fékk hann kynningu á nokkrum af þeim verkefnum sem starfrækt eru í safninu, eins og Lesum blöðin og önnur fjölmenningarleg verkefni.
Nú hefur Lowe skrifað um Borgarbókasafnið og heimsókn sína á bloggsíðu sína www.theproject.me.uk.
Samtökin sem Lowe er meðlimur í, Information for Social Changes, og er að auki í ritstjórn samnefnds tímarits félagsins, eru samtök aðgerðasinna sem fjalla um mál varðandi ritskoðun, frelsi og siðferði innan bókasafns- og upplýsingarfræði geirans. Samtökin leggja áherslu á að stuðla að valkostum við ríkjandi hugmyndafræði í vinnu við bókasafns-og upplýsingafræði og gefur út sitt eigið tímarit, Information for Social Change. Áhugasömum er bent á heimasíðu samtakanna http://libr.org/isc/.