Næsti Söguhringur kvenna verður haldinn á sunnudaginn 15. janúar, kl. 14.00 á Borgarbókasafni, Tryggvagötu 15. Að þessu sinni mun Valgerður Jónsdóttir kynna og stjórna því sem á ensku hefur verið kalla "intercultural dialogue" eða samræða milli menninga. Að vanda verður þetta samvera í notalegu og óformlegu umhverfi og gefst gott tækifæri til að styrkja tengslin. Kynningin fer fram á íslensku og ensku og svo er auðvitað hægt að túlka yfir á þau tungumál sem töluð eru í hópnum.Heitt á könnunni og meðlæti eins og venjulega. Allar konur velkomnar!
Meira um Söguhring kvenna