Á síðasta ári stóðu Borgarbókasafn Reykjavíkur og Myndlistaskólinn í Reykjavík fyrir myndasögusamkeppni og -sýningu fyrir fólk á aldrinum 10-20+ ára.
Þátttaka var mjög góð, veitt voru ein verðlaun og sex viðurkenningar og stóð sýningin í tæpa þrjá mánuði á Reykjavíkurtorgi Grófarhúss og vakti mikla athygli gesta safnsins.
Við hjá Borgarbókasafninu og Myndlistaskólanum erum að vonum ánægð með hversu vel tókst til og efnum nú til fjórðu samkeppninnar og sýningarinnar.
Gert er ráð fyrir sýningin opni sömu helgi og hinn alþjóðlegi dagur ókeypis myndasögunnar er haldinn, en hann ber upp á laugardegi, 5. maí. Sýningin myndi þá opna sunnudaginn 6. maí og vera sem fyrr á Reykjavíkurtorgi Grófarhúss.
Eins og tíðkast hefur er samkeppnin helguð tiltekinni myndasöguhetju en árið 2012 verður japanski vélstrákurinn Astro Boy sextugur (kom fyrst fram árið 1952). Þema keppninnar er því „Manga“.
Dómnefnd skipa Bjarni Hinriksson myndasöguhöfundur, Inga María Brynjarsdóttir grafískur hönnuður og myndhöfundur og Björn Unnar Valsson bókmenntafræðingur.
Miðað er við að hámarkslengd efnis sé 2 A4 blöð eða ein síða í A3 (öðru megin) og eru þátttakendur beðnir að nota frekar þykkan pappír en ekki venjuleg fjölritunarblöð til að tryggja að verkin verði fyrir sem minnstu hnjaski í upphengingu.
Vinnuaðferðin er algerlega frjáls og verkin geta hvort sem er verið myndasaga eða stök mynd með myndasögutema og / eða sem tengist myndasögum á einhvern hátt.
Þátttakendur eru beðnir að skila verkunum á Borgarbókasafnið, aðalsafn, Tryggvagötu 15, í umbúðum merktum: „Manga 2012“. Vinsamlega athugið að láta fylgja fullt nafn, fæðingarár, símanúmer og tölvupóstfang. Skilafrestur er til og með 23. april 2012.
Upplýsingar um samkeppnina / sýninguna eru á vef Borgarbókasafns, sjá borgarbokasafn.is

Upplýsingar veita Björn Unnar Valsson, bjorn.unnar.valsson@reykjavik.is og Katrín Guðmundsdóttir, katrin.gudmundsdottir@reykjavik.is, eða í síma 4116100.
Auglýsing 1 til útprentunar (pdf 1,29 mb)
Auglýsing 2 til útprentunar (pdf 1,92 mb)