Grænar og góðar bækur hafa slegið í gegn og er nú svo komið að okkur vantar fleiri bækur. Því auglýsum við eftir vænlegum og áhugaverða bókum í endurlestur.Gestir safnsins eru hvattir til að koma með bækur sem þeir eru búnir að lesa og finnst skemmtilegar og leyfa öðrum að njóta þeirra. Bækurnar eru merktar sérstaklega þessu verkefni Græn bók – góð bók. Öllum er frjálst að taka með sér bók og þarf enginn að hafa áhyggjur af skiladegi eða sektum. Ætlunin er að þessar bækur fari í hringrás þannig að við mælum með því að þeim sé skilað aftur á grænu borðin en það er þó engin skylda.Grænu og góðu“ bækurnar eru í öllum söfnum Borgarbókasafns og eru alveg fríar!!!Með þessu verkefni vill Borgarbókasafnið búa til vettvang þar sem hægt er nálgast áhugaverðar og skemmtilegar bækur öllum að kostnaðarlausu. Þetta er eins konar skiptibókamarkaður að því undanskildu að grænu bækurnar eru sérvaldar. Skilyrði er að þær séu vel með farnar, hreinar og áhugaverðar. Markmið verkefnisins er að auðvelda aðgengi að bókum, hvetja til lesturs, ýta undir endurvinnslu og -nýtingu og að hafa það skemmtilegt.