Sunnudagar eru barnadagar í aðalsafni Borgarbókasafns Tryggvagötu 15.
Næsta sunnudag 22. janúar kl. 15 munu Helga Arnalds og Eivör Pálsdóttir koma i heimsókn og kynna sýninguna Skrímslið litla systir mín sem verður frumsýnt í Norræna húsinu 4. febrúar. Eivör semur tónlistina fyrir sýninguna og mun syngja eitt lag úr henni. Helga spjallar við börnin um það að eignast systkini. Allar fjölskyldur velkomnar! Enginn aðgangseyrir!
Um sýninguna sem sýnd verður í Norræna húsinuSkrímslið litla systir mín segir frá strák sem hefur nýlega eignast litla systur. Hann kemst reyndar fljótlega að því að hún er ekkert venjulegt barn heldur skrímsli sem ætlar að éta mömmu hans upp til agna og kannski bara allan heiminn. Til að bjarga mömmu sinni og öllum heiminum frá litla skrímslinu, þarf hann að ferðast gegnum skuggalega skóga, um dimmar drekaslóðir, alla leið út á heimsenda og hann lærir í leiðinni að elska litlu systur sína. Skrímslið litla systir mín er leikhúsupplifun fyrir börn í hæsta gæðaflokki þar sem börnin taka þátt og upplifa í miklu návígi töfra leikhúss, tónlistar og myndlistar. Leikkonan býður börnunum inn í hvítan pappírsheim. Pappírinn lifnar smám saman við og verður að persónum sögunnar. Leikkonan notar pappír, tónlist og ljós til að segja þeim sögu. Sögu um það hvernig maður getur lært að elska - jafnvel skrímsli.
Sjá nánar á heimasíðu Norræna hússins