Miðvikudaginn 25. janúar 2012 kl. 20 mun Ingvi Þór Kormáksson, starfsmaður Borgarbókasafns, fjalla um glæpasögur í Bókakaffi Menningarmiðstöðvarinnar Gerðubergs, Gerðubergi 3-5.
Í umfjöllun sinni mun Ingvi Þór fjalla um upphaf glæapasagnaritunar hérlendis og erlendis, fara yfir sögu þessarar bókmenntagreinar í stuttu máli og velta fyrir sér glæpasagnaskrifum á Íslandi upp á síðkastið.
Bókakaffið er samstarfsverkefni Borgarbókasafns og Menningarmiðstöðvarinnar Gerðubergs og er liður í líflegri og fjölbreyttridagskrá í Menningarmiðstöðinni á þessu misseri. Sjá nánar á heimasíðu Gerðubergs