Næstkomandi sunnudag, 29. janúar lýkur sýningu verkum Diddu Hjartardóttur Leaman myndlistarmanns í Artótekinu, á 1. hæð í aðalsafafni.
Didda Hjartardóttir Leaman lauk framhaldsnámi frá málaradeild Slade School of Fine Art í London árið 1989 og frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1987. Hún stundar nú meistaranám í kennslufræði sjónlistar við Listaháskóla Íslands. Didda flutti aftur til Íslands fyrir fjórum árum, eftir tuttugu ára búsetu í London. Hún hefur því lengst af starfað erlendis að myndlistinni. Sýningin í Artótekinu er þrettánda einkasýning hennar. Árið 2009 hélt hún sem hún nefndi Skynjun og sköpun skrímslis í sýningarýminu Suðsuðvestur sem hún og árið áður sýndi hún í Start Art Gallery í Reykjavík. Einnig hefur hún tekið þátt i samsýningum í London og á Íslandi.
Didda notar ýmsa miðla við myndlistina. Hvert verkefni eða hugmyndin kallar á ákveðið vinnuferli og fær að ráða ferðinni. Hún hefur töluvert unnið með ævintýri og kort t.d. götukort af London.
Á sýningunni í Artótekinu eru ljósmyndir teknar í búsáhaldabyltingunni árið 2009. Myndirnar eru teknar í dimmu og stækkaðar talsvert upp. Þær eru hreyfðar og litur, ljós og hreyfing mynda saman einhverskonar ryþma í myndunum, sem er það sem listamaðurinn hefur áhuga á að fanga.
Didda hefur einnig unnið við þýðingar, kennslu, sýningarstjórn, skrif og ýmis önnur myndlistartengd verkefni. Hún er félagsmaður í Sambandi íslenskra myndlistarmanna. Listasafn Reykjavíkur og einkaaðilar eiga verk eftir Diddu.
Artótekið leigir út og selur íslenska myndlist til einstaklinga og fyrirtækja. Hægt er að skoða verkin á staðnum eða á vefsíðunni www.artotek.is.
Opið er mánudaga - fimmtudaga kl. 10-19, föstudaga kl. 11-18 og um helgar kl. 13-17