Kristín Ragna Gunnarsdóttir hlaut Dimmalimm - íslensku myndskreytiverðlaunin 2011 fyrir myndlýsingar í bókinni Hávamál sem Þórarinn Eldjárn endurorti og gefin var út af Mál og menningu síðastliðið haust.Í dómnefnd sátu Aðalsteinn Ingólfsson, Kalman le Sage de Fontenay, grafískur hönnuður og Bryndís Loftsdóttir, bóksali. Í rökstuðningi segir meðal annars að dómnefndin leggi áhersla á að myndirnar í bókunum séu ekki einskær endurspeglun textans, heldur auki við hann og geri hann innihaldsríkari, séu jafnvel lífvænlegar utan bóka. Þetta á sannarlega við um bók Kristínar Rögnu, sem nú hlýtur þessi verðlaun öðru sinni. Hún teflir saman hreinni teikningu, málverki og samklippi sem vísar í allar áttir, og þá sérstaklega í íslenskan samtíma.
Til gamans má geta að Kristín Ragna hannaði bókamerki fyrir Borgarbókasafnið og er hægt að nálgast það í öllum útibúum safnins.