Fimmtudaginn 2. febrúar kl. 16.45 býður Heilahristingur upp á fræðslu og samveru fyrir sjálfboðaliða heimanámsaðstoðarinnar á 6. hæð í Grófarhúsi, Tryggvagötu 15.
Arnbjörg Eiðsdóttir kennsluráðgjafi og sjálfboðaliði kemur og gefur góð ráð í tengslum við heimanámsaðstoð. Einnig verða tveir námsráðgjafar úr Hagaskóla á staðnum. Þeir mæta með kennslubækur og geta svarað spurningum varðandi námsefnið. Boðið verður upp á hressingu og gefst tækifæri til að spjalla við aðra sjálfboðaliða.
Allir áhugasamir eru velkomnir, bæði starfandi sjálfboðaliðar í verkefninu semog þeir sem að hafa áhuga á að gerast sjálfboðaliðar. Vinsamlegast skráið ykkur fyrir miðvikudaginn 1. febrúar hjá Hrafnhildi Gísladóttur. Heimanámsaðstoðin er í boði á þremum söfnum Borgabókasafns, sjá nánar á heimasíðu verkefnisins og á Facebooksíðu Heilahristings.
Heilahristingur er samstarfsverkefni Borgarbókasafns og Reykjavikurdeild Rauða Krossins.