Næsti fundur leshringsins í Ársafni verður að venju fyrsta miðvikudag í mánuðinum eða miðvikudagurinn 1. febrúar kl. 16:15. Umræðuefni fundarins verða áfram nýju bækurnar, sem meðlimir hópsins hafa verið að lesa sig í gegnum frá jólum. Ljóðabók mánaðarins er Rennur upp um nótt eftir Ísak Harðarson. Þeir sem hafa auka lestrarmátt lesa einnig Bókaránið mikla sem segir frá sönnu sakamáli sem gerðist á Konunglega bókasafninu í Kaupmannahöfn, bókina skrifuðu blaðakonurnar Lea Korsgaard og Stéphanie Surrugue.
Umsjónar leshringsins er Jónina Óskarsdóttir