Næsti Söguhringur kvenna verður sunnudaginn 5. febrúar. Að þessu sinni fer hringurinn fram á Café Haiti, Geirsgötu 7b og byrjar kl. 14.
Elda og Metúsalem, eigendur kaffihússins, bjóða upp á nýbakaðar “brownies„ og bragðgóða kaffið þeirra verður í boði Söguhringsins.
Elda, sem er frá Haiti, ætlar að deila sögu sinni. Dagskráin verður að öðru leyti óformleg og ef einhver vill troða upp með leik, söng, dansi eða einhverju öðru er það velkomið. Hittumst á Haiti kl. 14! Allar konur velkomnar.