Fjölskyldusmiðja í gerð öskupoka og bolluvanda í samstarfi við Heimilisiðnaðarfélag Íslands verður í Gerðubergi sunnudaginn 19. febrúar kl. 14 - 16 og í Borgarbókasafni Grófarhúsi, Tryggvagötu 15 kl. 15 - 16.30. Krökkum á öllum aldri er boðið að taka þátt – takið gjarnan mömmu og pabba eða afa og ömmu með.
Allt efni á staðnum – aðgangur ókeypis - allir velkomnir!
Bolludagur, Sprengidagur og Öskudagur lifa lengi í minningunni! Að flengja foreldrana og aðra fullorðna að morgni bolludags og segja „bolla, bolla“ og fá jafnmargar bollur að launum síðar um daginn ásamt því að hengja öskupoka aftan á bak einhvers, án þess að viðkomandi verði þess var, eru gamlir og skemmtilegir siðir.
Bolluvendi er auðvelt að útbúa en þeir eru gjarnan gerðir úr löngum prikum og litríkum pappírsræmum. Öskupokar eru litlir skrautlegir pokar sem dregnir eru saman með þræði sem í er hengdur boginn títiprjónn. Markmiðið er að næla öskupokanum aftan á bakið á einhverjum án þess að fórnarlambið taki eftir því.
Í smiðjunni eru gerðir öskupokar og bolluvendir eftir kúnstarinnar reglum. Verkefnið er við allra hæfi, auðvelt og skemmtilegt undir leiðsögn sérfróðra.