Fjöruverðlaunin, bókmenntaverðlaun kvenna, voru afhent í sjötta sinn á konudaginn, sunnudaginn 19. febrúar í Iðnó.
Í flokki fagurbókmennta fékk Oddný Eir Ævarsdóttir verðlaun fyrir bókina Jarðnæði, Birna Lárusdóttir hlaut verðlaunin í flokki fræðibóka fyrir bókina Mannvist og í flokki barna- og unglingabóka hlaut Margrét Örnólfsdóttir verðlaun fyrir skáldsöguna Með heiminn í vasanum.
Sandi Toksvig, sérstakur gestur hátíðarinnar, hélt ávarp og svaraði spurningum úr sal en hún er vel þekktur rithöfundur, grínisti og dagskrárgerðarmaður í Bretlandi. Hún hefur einnig verið formaður dómnefndar Orange bókmenntaverðlaunanna, sem eru sambærileg verðlaun þar í landi.