Það er óhætt að segja að það hafi verið líf og fjör í aðalsafni Borgarbókasafns sunnudaginn 19. febrúar þegar boðið var upp á leiðsögn í gerð bolluvanda og öskupoka. Eins og sjá má á myndunum voru mömmur, ömmur, pabbar og afar ekki síður áhugasamir um bolluvendina og öskupokana en börnin. Þeir sem vildu gátu búið til Origami fugla og blóm undir leiðsögn félagsmanna í Origami á Íslandi.