Sunnudagar eru barnadagar í Borgarbókasafni og næsta sunnudag verður krakkabíó í Gerðubergssafni kl. 14 og sögustund í aðalsafni kl. 15. Í sögustundinni mun Ingibjörg Ferdinandsdóttir lesa úr nýútkominni bók sinni Keli minn sem hvarf og ræða við börnin um efni bókarinnar.
Keli minn sem hvarf fjallar um 6 ára strák, Hafstein, sem þráir ekkert heitar en að eignast kisu. Draumurinn rætist og hann fær kettlinginn Kela í afmælisgjöf. Þegar Hafsteinn er níu ára hverfur Keli og þá þarf drengurinn að kljást við nýjar tilfinningar sem hann þekkti ekki áður og að læra að vera þolinmóður.
Þetta er bók, sem fjallar um drauma sem rætast, vináttu og vonir, sorg og gleði. Bókin, sem er fallega myndskreytt af Aðalheiði Vigfúsdóttur, hefur slegið í gegn hjá öllum sem kynnst hafa kettinum Kela, stráknum Hafsteini og öðrum persónum bókarinnarHöfundarnir segja um bókina: „Hún hentar mjög vel 5-10 ára krökkum, strákum og stelpum, en ég vil samt bæta því við að þessi bók hentar öllum þeim sem hafa gaman að fólki, kisum, von, trú og kærleika. Þannig að 5-95 ára er réttara svar! Ég hef heyrt frá mörgum ánægðum foreldrum sem hafa hlegið og skemmt sér konunglega. Bókin kennir börnum margt, til dæmis að þegar eitthvað bjátar á þá er gott að eiga sér von, trú og kærleika í hjartanu. Bókin gefur líka mörg tækifæri fyrir foreldra að ræða við börn um sorg, von og gleði. Söguhetjan Hafsteinn minnir börn á að í þeim býr hetja.“Vigdís Grímsdóttir sagði frá því á Facebook að hún hefði lesið úr Kelabókinni fyrir barnahóp: ,,Aldeilis viðbrögð; spurningar, skoðanir, gleði og endalaus frammígrip - til hamingju Ingibjörg Ferdinandsdóttir með frábæra bók - engin smábyrjun!"