Ráðstefna um barna- og unglingabókmenntir verður haldin í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi, laugardaginn 3. mars kl. 10.30 - 13.30.
Dagskrá:Anna Þorbjörg Ingólfsdóttir – bókmenntafræðingur, lektor við Háskóla Íslands„Api, c, d, e, f, g, ettir kemur h, í, k, ellimenn og einnig p. Atla é kúðar standi hjá.“ Ásmundur K. Örnólfsson - leikskólakennari og aðstoðarleikskólastjóri á ÆgisborgLestur leikskólamanns. Bryndís Loftsdóttir - vörustjóri íslenskra bóka hjá EymundssonSala íslenskra barnabóka – þróun síðustu ára og brýnustu verkefni. Áslaug Jónsdóttir - myndlistamaður og rithöfundurVelkominn í heiminn... - þankar um myndabókina, höfundinn og lesandann. Fundarstjóri: Einar Ólafsson, bókavörður og skáld.
Allir velkomnir og aðgangur ókeypis.Í hléi geta ráðstefnugestir keypt léttar veitingar hjá Gallerý fiski.
Árleg ráðstefna um barna- og unglingabókmenntir í Gerðubergi er haldin í samvinnu við IBBY á Íslandi, Borgarbókasafn Reykjavíkur, Rithöfundasamband Íslands - Síung, Skólasafnamiðstöð Reykjavíkur, Félag fagfólks á skólasöfnum og Upplýsingu – Félag bókasafns- og upplýsingafræða.