Nú stendur yfir áhugaverð sýning á ljósmyndum og bókum í aðalsafni, en sýningin er samstarfsverkefni Guðbjargar H. Leaman (Diddu) og Söguhrings kvenna.
Sýningin er hluti af meistaraverkefni Guðbjargar í kennslufræði sjónlista við Listaháskóla Íslands og fékk hún til samstarfs við sig tíu konur úr Söguhring kvenna. Sýningin eða verkefnið er í formi ljósmynda sem konurnar tíu tóku og bóka sem þær völdu ásamt Diddu úr safninu auk eigin bóka. Þátttakendur fengu það verkefni að taka ljósmyndir á einnota myndavél með ákveðin myndefni í huga og þannig var reynt að fá að fá persónulega sýn og sammannlega á þann heim sem blasir við. Myndefnin sem þátttakendur fengu voru: 1. Ljósmyndir af uppáhaldsútsýni frá heimili þínu 2. Ljósmyndir af uppáhaldsbyggingum í Reykjavík eða nágrenni 3. Ljósmyndir af einhverju sem hefur sterka tengingu við upprunaland þitt 4. Ljósmyndir frá því svæði sem þú býrð á, staðir sem þér líkar við eða nýtur 5. Ljósmyndir úr umhverfi þínu af einhverju sem þér finnst sérstaklega íslenskt 6. Ljósmyndir úr umhverfi þínu sem minna þig á einhvern hátt á upprunaland þitt 7. Restin af myndunum, frítt val
Hluti þeirra mynda sem eru á sýningunni Bækurnar sem valdar voru þóttu þátttakendum endurspegla einhverja þætti um uppruna sinn, persónuleg áhugamál, eða annað sem þeir hafa ástríðu fyrir. Bækurnar geta líka verið góður útgangspunktur til að kynna Ísland, íslenska menningu eða annað sem varðar landflutninga, staði og ferðir almennt. Bækurnar eru ekki til útláns.
Bækurnar og ljósmyndirnar verða til sýnis til 18. mars.