Í tilefni Mottumars og átaksins „Karlmenn og krabbamein“ sem nú stendur yfir, sýnum við um helgina tvær fræðslumyndir þessu tengdar í Kamesi Borgarbókasafns, Tryggvagötu 15.
Krabbamein í blöðruhálskirtli Dönsk mynd frá 2005 með ísl. texta. Sýningartími 26 mínútur Sýnd laugardag og sunnudag kl. 13:00 og 14:00 Þetta er svo lúmskt : fræðslumynd um krabbamein í ristli og endaþarmi Splunkuný íslensk heimildamynd. Sýningartími 27 mínútur Sýnd laugardag og sunnudag kl. 15:00 og 16:00 Kaffi á könnunni og bæklingar og fleira fræðsluefni á staðnum.
Nánari upplýsingar um Mottumars á heimasíðu Krabbameinsfélagsins