Þann 12. mars opnaði fuglasýning Björns Björnssonar og Björns Ingvarssonar á Foldasafni og stendur hún til 12. apríl.
Þar leiða saman hesta sína áhugaljósmyndarinn og Grafarvogsbúinn Björn Ingvarsson, og fuglaljósmyndarinn Björn Björnsson frá Norðfirði. Sýndar eru 10 myndir frá hvorum þeirra og er sýningin á báðum hæðum bókasafnsins.
Björn Björnsson var kunnur af fuglaljósmyndun á sínum tima, en myndirnar á sýningunni voru teknar víða um land á árunum 1948-1967 á svarthvíta filmu með þess tíma tækni og síðan handlitaðar. Myndir Björns Ingvarssonar voru teknar á höfuðborgarsvæðinu um sumarið 2011 með stafrænni myndavél og íþróttalinsu.
Gestum safnsins gefst því nú kostur á að virða fyrir sér fuglamyndir frá mismunandi tímum, sem teknar voru og unnar með tækjakosti og tækni hvors tíma. Í boði er léttur spurningaleikur fyrir börn og fullorðna þar sem hægt er að vinna til verðlauna.
ccc