Sunnudaginn 25. mars kl. 15 verður leikfangateppið Þúfi „frumsýnt“ í aðalsafni og er sýningin í tengslum við HönnunarMars 2012.
Þórunn Lárusdóttir leikkona les kvæði fyrir yngri kynslóðina og hönnuðirnir Dóra Sölvadóttir, Íris Ægisdóttir og Sonja Björk Ragnarsdóttir kynna Þúfa.
Þúfi er vara sem er ætluð börnum, hönnuð með það í huga að frjóvga ímyndunarafl þeirra. Þúfi er jafnt leikfang sem húsgagn og vex með barninu. Hann er gerður úr tveim mismunandi formum sem eru fest saman. Eins og nafnið gefur til kynna er hugmyndin að Þúfa sótt í íslenska náttúru.