Fimmtudaginn 29. mars verður ný íslensk smásaga, Eins og í sögu, frumflutt samtímis í öllum grunnskólum landsins, kl. 9.45. Höfundur sögunnar, Ragnheiður Gestsdóttir, les söguna á Rás 1 í sömu andrá svo að öll þjóðin geti lagt við hlustir. Ragnheiður skrifaði söguna fyrir börn á aldrinum 6-16 ára í tilefni dags barnabókarinnar að beiðni IBBY á Íslandi.
Ragnheiður hlaut Sögustein, bókmenntaverðlaun IBBY á Íslandi, á degi barnabókarinnar í fyrra. Eins og í sögu fjallar um það hvernig galdur skáldskaparins getur reynst hin styrkasta stoð þegar tekist er á við ógnir hversdagsins. Aðalpersóna sögunnar er lögð í einelti í skólanum en finnur óvænta hjálp í hillum skólabókasafnsins. Sagan verður lesin fyrir grunnskólabörn á öllum aldri í leikfimisölum og smíðastofum, á sal og í sundlaugum, í frímínútum og í dönskutímum, allt eftir því hvernig hver skóli kýs að fella upplesturinn að stundaskrám nemendanna. Tilgangurinn er að fagna degi barnabókarinnar (2. apríl) með notalegri sögustund og vekja um leið athygli á sameiningarmætti skáldskaparins. Með því að flytja söguna fyrir mörg þúsund lesendur í einu er mögulegt að skapa bókmenntaumræðu sem nær til samfélagsins alls. Þetta er í annað sinn sem IBBY á Íslandi fagnar degi barnabókarinnar með þessum hætti, en í fyrra var sagan Hörpuslag eftir Kristínu Helgu Gunnarsdóttur lesin bæði í skólum og á Rás 1. Nánari upplýsingar veita Arndís Þórarinsdóttir, formaður IBBY á Íslandi, í síma 897 2772 og Ragnheiður Gestsdóttir, rithöfundur, í síma 565 0716 eða 891 8503.
IBBY eru alþjóðleg samtök sem stofnuð voru 1953 og starfa nú í sjötíu löndum. Markmið samtakanna er að vinna í anda stofnandans, Jellu Lepman, sem áleit að góðar barnabækur gætu byggt brú á milli þjóða heims og miðlað fróðleik og skilningi milli ólíkra menningarsamfélaga. IBBY á Íslandi hefur starfað frá árinu 1985.