Blúsvagn, stútfullur af endurnærandi eldsneyti, hefur verið ræstur í aðalsafni og gengur hann til loka Blúshátíðar. Blúsdiskar með tónlist og myndum, bækur um blús og blússögu, ævisögur blúsara og kennslubækur í blúsgítarleik. Áfylling eftir þörfum úr blústanki Tón- og mynddeildar. Ókeypis blúslán fyrir alla sem eiga bókasafnskort. Upplagt til að hita upp fyrir Blúshátíð sem hefst laugardaginn 31. mars og halda sér gangandi meðan hún stendur yfir.
Hér má kynna sér dagskrá Blúshátíðar