Sunnudagar eru barnadagar í Gerðubergssafni og aðalsafni og er þar alltaf eitthvað um að vera fyrir börn og fjölskyldur þeirra. Sunnudaginn 1. apríl verða búnar til skemmtilegar páskafingurbrúður í Gerðubergssafni kl. 14 og í aðalsafni er boðið upp á þrjúbíó.
Enginn aðgangseyrir og allir velkomnir.