Könnunarleikur með hluti: Hvernig ung börn rannsaka hversdaglega hluti. Sigrún Einarsdóttir verkefnistýra á Leikskólasviði Reykjavíkurborgar spjallar um það hvað gerist þegar barn fer að geta hreyft sig úr stað. Um leið og það gerist opnast því nýir möguleikar. Það fær tækifæri til að rannsaka sitt nánast umhverfi með því handfjatla hluti og gera tilraunir á þeim á sínum forsendum í öruggu umhverfi þar sem við fullorðnu erum alltaf til staðar.
Gerðubergssafn, miðvikudaginn 11. apríl kl.10:30.
Aðalsafn, fimmtudaginn 12.apríl kl.10:30.