
Það er mikið um að vera í söfnum Borgarbókasafns á Barnamenningarhátíð, sögustundir, bókaverðlaun, bókakaffi, bókamarkaður og margt fleira. Hér má kynna sér heildardagskrá Barnamenningarhátíðar
Aðalsafn
Að leggjast í sortir
17. og 18. apríl kl. 9.00-14.30
Nemendum í 9. bekk í grunnskólum Reykjavíkur er boðið til bókaveislu í aðalsafni. Fjöldi áhugaverðra bóka, s.s. fantasíur, ævisögur, ástarsögur og myndasögur, verður dreginn fram og kynntur auk þess sem ýmsir þekktir einstaklingar segja frá lestrarreynslu sinni. Þessi dagskrá er í samstarfi við Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO.
Bókaverðlaun barnanna
19. apríl (sumardagurinn fyrsti) kl.14.00-15.00
Bókaverðlaun barnanna verða afhent í ellefta sinn, en bækurnar, sem hljóta þessi verðlaun, eru valdar af krökkum á aldrinum 6-12 ára víðsvegar af landinu. Veitt eru verðlaun fyrir eina frumsamda bók og eina þýdda.
Viltu verða persóna í bók?
19. apríl (sumardagurinn fyrsti)
kl.13.00-17.00
Skelltu þér inn í Risabókina sem unnin er af yfir 300 nemendum í Vesturbæjarskóla. Í bókinni eru felumyndir, ljóð, textar, flettimyndir, hljóð, skilaboð, lykt og það er líka pláss fyrir þig.
Gaman saman
21. apríl kl. 13.00-15.00
Gaman saman, dansað, sungið, föndrað lesið og sprellað. Dagskrá fyrir stór og smá börn á öllum aldri og allstaðar að. Sirkus Íslands mætir og hristir ærlega upp í áhorfendum, salsakennsla þar sem Etna Lupita Mastache kennir spor undir fjörugum tónum frá Suður-Ameríku og Karabíhafinnu, grímugerð og andlitsmáling. Ekki missa af bráðskemmtilegri dagskrá í aðalsafni Borgarbókasafns laugardaginn 21.4 kl. 13 - 15! Gaman saman er samstarfsverkefni leikskólanna Garðaborgar, Nóaborgar, Skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar og Borgarbókasafns.
13:00 „Höfuð, herðar, hné og tær...“ á ýmsum tungumálum.
13:10 Sirkus Íslands
13:40 Rauðhetta á pólsku og spænsku
14:00 Tónlist frá Perú
14.15 Pólskt leikhús
14:30 Salsakennsla
kl. 13:40 til 15.00 Grímugerð og andlitsmáling.
Ársafn
Arngrímur apaskott
17. apríl kl. 13.00-15.00
Opnun á veggskreytingum Kristínar Arngrímsdóttur sem hún hefur málað upp úr bókum sínum um Arngrím apaskott.
Æringjasögur
17. apríl kl. 13.00-15.00
Opnun sýningar á Æringjasögum. Sýningin er samstarfsverkefni leikskóla og grunnskóla. Leikskólabörn sömdu sögur í sögubílnum Æringja og börn og unglingar úr grunnskólum myndskreyttu þær. Sóla sögukona Æringja opnar sýninguna og verða söguhöfundar viðstaddir.
Sögustund
22. apríl kl. 14.00-15.00
Kristín Arngrímsdóttir les úr bókum sínum um Arngrím apaskott.
Foldasafn
Lesið í línurnar
Alla vikuna kL. 10-19
Börnum gefst tækifæri til að taka þátt í að búa til lifandi söguþræði á Foldasafni meðan á Barnamenningarhátíð stendur. Spennusögur, fyndnar sögur, dramatískar sögur, hrakfallabálkasögur. Bættu við þinni uppáhaldsbók og vertu með í að skapa skemmtilegan söguþráð.
Origami námskeið
21. apríl kl. 14.00-16.00
Björn Finnsson frá Origami Ísland mun leiðbeina áhugasömum við japanskt pappírsbrot á Foldasafni.
Námskeiðið er opið öllum.
Bókakaffi. Bókabrellur og bollakökur
21. apríl kl. 13.00-14.00
IBBY á Íslandi býður upp á kaffihúsastemningu í Foldasafni. Bókaspjall með óvæntum uppákomum fyrir krakka sem þora.
Kringlusafn
Bókamarkaður
Alla vikuna á afgreiðslutíma safnsins
Á bókamarkaðinum verða seldar bækur sem gestir hafa gefið safninu og ágóðinn mun renna óskiptur til heimilis sem Íslendingar reka á Haíti fyrir munaðarlaus börn.
Bókaormur frá leikskólanum Álftaborg kemur í heimsókn.
Hér og þar um borgina
Ungir sögumenn
Laugarnesskóli, Leikskólar, Barnamenningarhús, sögubíllinn, Kirkjuteigur 24
Kl. 09:30 - 14:00
Börn úr elstu bekkjum Laugarnesskóla segja börnum og fullorðnum sögu. Þetta er afrakstur samvinnuverkefnis Laugarnesskóla og sögubílsins Æringja frá Borgarbókasafni sem nefndist Sögukona í fóstur.
Nemendurnir hafa verið á sagnanámskeiði hjá Ólöfu Sverrisdóttur, verkefnastjóra sögubílsins Æringja og á Barnamenningarhátíðinni ætla þau að nýta þessa nýfengnu kunnáttu sína og segja sögur í Laugarnesskóla, á Dalbraut, í Barnamenningarhúsinu, í leikskólum og í sögubílnum Æringja ásamt Sólu sögukonu.
