Í tilefni indverskrar kvikmyndahátíðar sem stendur yfir 11.- 20. apríl í Bíó Paradís stillum við út indversku efni á 1. hæð í aðalsafni. Þar má finna skáldsögur eftir indverska eða indverskættaðra höfunda, indverska tónlist, kvikmyndir og fleira. Óhætt er að mæla með nokkrum góðum bókum í íslenskri þýðingu eins og „Viltu vinna milljón“, „Hvítur tígur“ og bækur Salman Rushdie auk bóka á ensku, s.s. eftir Anitu og Kiran Desai.
Dagskrá indversku kvikmyndahátíðarinnar má kynna sér hér