Nú eru hver að verða síðastur sjá SJÓLAG, sýningu á verkum Hrafnhildar Ingu Sigurðardóttur í Artóteki en sýningunni lýkur sunnudaginn 22. apríl. Sýningin er á Reykjavíkurtorgi á 1. hæð Borgarbókasafns Reykjavíkur, Grófarhúsi, Tryggvagötu 15.
Málverkin á sýningunni eru úr náttúrunni, einkum sjólagi og veðurfari á hafi úti. Úfnar öldur, boðaföll og brim einkenna margar myndanna.
Sjólag er þrettánda einkasýning Hrafnhildar Ingu sem hefur einnig tekið þátt í samsýningum í Bandaríkjunum, Litháen, á Spáni og Íslandi. Hrafnhildur Inga hefur síðustu ár eingöngu unnið við myndlist. Allar myndirnar á sýningunni eru olíumyndir á striga og eru til leigu og sölu. Heimasíða Hrafnhildar Ingu er www.hrafnhilduringa.com
Artótekið leigir út og selur íslenska myndlist til einstaklinga og fyrirtækja. Hægt er að skoða verkin á staðnum eða á vefsíðunni www.artotek.is.
Síðasti sýningardagur er 22. apríl Opið er mánudaga - fimmtudaga kl. 10-19, föstudaga kl. 11-18 og um helgar kl. 13-17