Bókaverðlaun barnanna verða afhent í ellefta sinn á sumardaginn fyrsta kl. 14 í aðalsafni Borgarbókasafns, Tryggvagötu 15. Bækurnar sem hljóta þessi verðlaun, eru valdar af krökkum á aldrinum 6-12 ára víðsvegar af landinu. Veitt eru verðlaun fyrir eina frumsamda bók og eina þýdda. Allir velkomnir! Safnið er opið ´kr. 13-17.
Sjá meira um Bókaverðlaun barnanna
Gestir geta einnig upplifað hvernig það er að vera persóna í bók með því að bregða sér í risabók sem unnin er af yfir 300 nemendum í Vesturbæjarskóla. Í bókinni eru felumyndir, ljóð, textar, flettimyndir, hljóð, skilaboð, lykt og svo aðalpersónan þú.