Á Bókakaffi í Gerðubergi miðvikudagskvöldið 25. apríl kl. 20 mun Bjarni Guðmundsson, sem oftast er kenndur við Hvanneyri, segja gestum frá því hvernig dráttarvélarnar Ferguson og Farmall breyttu gangi mála í sveitunum.
Ört vaxandi þjóð, sem bjó við áður óþekkta velmegun að nýlokinni heimsstyrjöld, krafðist stóraukinna afkasta í landbúnaði – afkasta sem ekki varð náð nema með vélvæðingu sveitanna. Þar skiptu heimilisdráttarvélarnar sköpum. Bjarni Guðmundsson sem oftast er kenndur við Hvanneyri er hafsjór af fróðleik um þessa umbrotatíma og hefur unnið einstakt verk við skráningu þeirra og út hafa komið bækurnar
…og svo kom Ferguson og Alltaf er Farmall fremstur.
Upplýsingar um traktorabækur Bjarna má nálgast hér.
Bjarni Guðmundsson er fæddur á Kirkjubóli í Dýrafirði 18. ágúst 1943. Bjarni varð Búfræðingur frá Hvanneyri 1962 og búfræðikandídat 1965. Hann lauk síðan Licentiatprófi í búvísindum frá Búnaðarháskólanum í Ási í Noregi 1971.
Bjarni hefur verið prófessor í bútækni við Landbúnaðarháskólann og stundað rannsóknir á verkun fóðurs (heys, korns) og tækni við fóðuröflun. Bjarni lauk föstu starfi við skólann í ágúst 2008 og sinnir nú sérverkefnum á vegum hans í hálfu starfi. Bjarni svarar fyrir Landbúnaðarsafn Íslands (www.landbunadarsafn.is ) og fæst við búnaðarsöguleg viðfangsefni.
Bókakaffi Gerðubergs eru samstarfsverkefni Borgarbókasafns og Menningarmiðstöðvarinnar Gerðubergs.