Sögukonan Sóla sem keyrir um borgina á sögubílnum Æringja kann svo sannarlega galdurinn að segja góða sögu. Hún hefur að undanförnu verið að vinna ævintýralega skemmtilegt verkefni með nemendum úr 5. og 6. bekk í Laugarnesskóla. Sóla er búin að gefa þeim góð ráð um það hvernig gott er að segja öðrum sögur en líka um það hvernig hægt er að semja sínar eigin sögur. Krakkar á leikskólanum Laugasól voru meðal þeirra sem fengu að hlýða á afraksturinn í skemmtilegri sögustund. Að henni lokinni fengu krakkarnir að kíkja á sögubílinn hennar Sólu sem vekur alltaf mikla lukku.
Hér er hægt að sjá frétt um sögustundina á heimasíðu Laugarnesskóla.