Sunnudagar eru barnadagar í aðalsafni og Gerðubergssafni. Sunnudaginn 29. apríl verður búningadagur og andlitsmálun í Gerðubergssafni og sögustund í aðalsafni. Dagskráin byrjar kl. 14 í Gerðubergssafni og kl. 15 í aðalsafni. Allir velkomnir.
Þetta er síðasti sunnudagurinn í bili sem boðið verður upp á dagskrá fyrir börn og fjölskyldur þeirra í aðalsafni en boðið verður upp á dagskrá í Gerðubergssafni fram til 1. júní.