Sunnudagar eru barnadagar“ eru nú farnir í sumarfrí í aðalsafni en halda áfram í Gerðubergssafni í maí og næsta sunnudag, 6. maí kl. 14-15 verður efnt til teiknisamkeppni fyrir börn á öllum aldri. Sumarið er á næsta leiti og því er þema samkeppninnar „fyndnar sumarmyndir“. Myndirnar verða hengdar upp í barnadeildinni og verða veitt verðlaun fyrir skemmtilegustu myndina. Allir velkomnir.