Borgarbókasafn efnir til vikulegra kynningarfunda um forsetaembættið og frambjóðendur til embættisins. Fundirnir verða á miðvikudögum kl. 17.15-18.15 í aðalsafni Borgarbókasafns, Tryggvagötu 15. Þeir eru ætlaðir almenningi og öllum opnir.
Á fyrsta fundinum mun Svanur Kristjánsson, prófessor í stjórnmálafræði, fjalla almennt um forsetaembættið og á tveimur síðari fundunum fá frambjóðendur tækifæri til að kynna sig og sínar áherslur.
Miðvikudagur 23. maí kl. 17.15-18.15 Svanur Kristjánsson fjallar um forsetaembættið.
Miðvikudagur 30. maí kl. 17.15-18.15 Frambjóðendurnir Ari Trausti Guðmundsson, Hannes Bjarnason og Þóra Arnórsdóttir.
Miðvikudagur 6. júní kl. 17.15-18.15 Frambjóðendurnir Andrea J. Ólafsdóttir og Herdís Þorgeirsdóttir. Því miður sá Ólafur Ragnar Grímsson sé ekki fært að mæta þar sem hann var búinn að bóka sig annars staðar á þessum tíma.
Allir velkomnir!
Ljósmynd Gunnar G. Vigfússon