Nú höfum við á Borgarbókasafni ákveðið að efna til fundar um þjónustu og framtíð safnsins. Fundurinn verður þriðjudaginn 15. maí kl. 10-11.30 á 6. hæð í Grófarhúsi, Tryggvagötu 15. Boðið verður upp á kaffi og með því. Við leitum eftir áhugasömum einstaklingum á öllum aldri til að taka þátt í þessum fundi með okkur.
Áhugasamir sendi póst á Guðríði Sigurbjörnsdóttur, gudridur.sigurbjornsdottir@reykjavik.is með upplýsingum um nafn, kennitölu (ekki skilyrði) og síma.