Þýsku kvikmyndhátíðinni „Í skugga stríðs", sem staðið hefur yfir í Kamesi Borgarbókasafns, Tryggvagötu 15, lýkur nú um helgina.
Berlin – Ecke Schönhauser, kl. 13 Myndin Berlin Ecke Schönhauser frá 1957 fjallar um rótlausa táninga í Austur-Berlín í uppreisn gegn fjölskyldu og yfirvöldum.
Titanic, kl. 15 Titanic frá árinu 1943 er sjaldséð og um margt umdeild mynd frá tímum þriðja ríkisins sem leiddi m.a. til handtöku og dauða upphaflega leikstjóra hennar Herbert Selpin. Mynd James Cameron frá 1997 um sama efni ber ýmis líkindi við þessa og telja sumir að Cameron hafi haft myndina að einhverju leyti til hliðsjónar við gerð sinnar myndar.
Abschied von Gestern (Anita G.), kl. 13 Myndin er frá 1966 í leikstjórn Alexanders Kluge, tímamótamynd með óvæntum endi um unga konu frá Austur-Þýskalandi sem kemur til Vestur-Þýskalands í leit að betra lífi.
Die Mörder sind unter uns, kl. 15 Víðfræg mynd frá 1946 um afleiðingar stríðs, uppgjör og refsingu, tekin í rústum Berlínarborgar rétt eftir stríðið.
Ókeypis aðgangur og allir velkomnir.