Fjölmenni og fjölbreytileiki setti mark sitt á Fjölmenningardag Reykjavíkurborgar sem haldinn var laugardaginn 12. maí. Þetta er í fjórða sinn sem Fjölmenningardagurinn er haldinn og er markmið hans að fagna fjölbreytileikanum. Dagurinn hófst með skrúðgöngu frá Hallgrímskirkju niður Skólavörðustíginn og að Ráðhúsinu. Í Ráðhúsinu var markaður þar sem handverk og matur frá hinum ýmsu löndum var kynntur og í Tjarnarbíói var lifandi skemmtidagskrá frá 14.00 -19.00.
Borgarbókasafnið tók þátt í deginum og var með kynningarbás í Ráðhúsinu þar sem meðal annars var boðið upp á "lifandi tungumál" sem fólst í því að spjalla við ýmsa aðila á hinum ólíklegustu tungumálum.
Kristín R. Vilhjálmsdóttir, verkefnastjóri fjölmenningar á Borgarbókasafni kynnti starfsemi safnsins í Ráðhúsinu