Nú stendur yfir sýning á MANGA myndasögum á Reykjavíkurtorgi aðalsafns. Sýningin er afrakstur myndasögusamkeppni Borgarbókasafns og Myndlistaskólans í Reykjavík.
Úrslitin voru kynnt sunnudaginn 6. maí, um leið og opnuð var sýning á þeim verkum sem bárust inn í keppnina.
Ásrún María Óttarsdóttir hlaut sigurverðlaun í myndasögusamkeppni Borgarbókasafns og Myndlistaskólans í Reykjavík sem lauk nýverið. Saga hennar um tölvuleikjaprinsessuna ónefndu þótti, að mati dómnefndar, „bera af fyrir sögumennsku, litanotkun, sjónarhorn og vitaskuld teikningu. Auk þess hittir hún naglann á höfuðið með teygjanlegum mörkum alvarleika og aulahúmors, sem er einkennandi fyrir ákveðinn geira japanskra myndasagna.“
Einnig voru fimm þátttakendum veittar viðurkenningar fyrir framúrskarandi sögur og myndir. Þeir eru, í orðum dómnefndar: „Anna Dóra Sigurðardóttir, fyrir íkonísk manga-portrett; Dagný Rósa Vignisdóttir, fyrir skrítluna um veskið botnlausa; Hildur Ýr Ásmundsdóttir, fyrir ringlandi ofurhetjuhasar; Védís Rúnarsdóttir, fyrir nátthrafninn í hettupeysunni; og Signý Æsa Káradóttir fyrir forviða sæborg.“ Keppnin var fyrir fólk á aldrinum 10-20+ ára.
Í keppnina bárust tæplega 60 sögur og myndir. Dómnefndina skipuðu Bjarni Hinriksson myndasöguhöfundur, Björn Unnar Valsson bókmenntafræðingur og Inga María Brynjarsdóttir grafískur hönnuður og myndhöfundur.
Nexus styrkti keppnina.