Borgarbókasafn býður börnum á aldrinum 8–12 ára að taka þátt í ritsmiðjum vikuna 11.–15. júní. Dagskrá er á hverjum degi, tvær klukkustundir í senn. Í ritsmiðjunum er áhersla lögð á skapandi skrif barnanna sjálfra og þeim til aðstoðar verða rithöfundar og starfsmenn safnanna. Ritsmiðja aðalsafns Tryggvagötu 15 verður í ágúst, nánari upplýsingar síðar. Ekkert þátttökugjald. Skráning hefst mánudaginn 14. maí. Hægt er að skrá í ritsmiðjurnar í söfnunum eða með því að senda tölvupóst á tengiliði.
Ársafni, Hraunbæ 119, sími 441 6250 tengiliður, Ólöf Sverrisdóttir olof.sverrisdottir@reykjavik.is Leiðbeinendur Bergljót Arnalds, Kristín Arngímsdóttir og Ólöf Sverrisdóttir
Foldasafni, Grafarvogskirkju við Fjörgyn, sími 411 6230 tengiliður Ingibjörg Ösp Óttarsdóttir ingibjorg.osp.ottarsdottir@reykjavik.is Leiðbeinandi Birgitta Hassell
Gerðubergssafni, Gerðubergi 3-5 sími 557 9122 tengiliður Bergrós Hilmarsdóttir bergros.hilmarsdottir@reykjavik.is Leiðbeinandi Aðalsteinn Ásberg
Sólheimasafni, Sólheimum 27 sími 411 6160 tengiliður Sigrún Jóna Kristjánsdóttir sigrun.jona.kristjansdottir@reykjavik.is Leiðbeinandi Birgitta Hassell
Senda á Facebook