Fyrsta kvöldganga menningarstofnana Reykjavíkurborgar verður fimmtudaginn 14. júní og er hún í höndum Listasafns Reykjavíkur.
GÁLGAGANGA, fimmtudag 14. júní kl. 20 Listasafn Reykjavíkur Jónatan Garðarsson, fjölmiðla- og fræðimaður, leiðir göngu að Kjarvalsreitnum í Gálgahrauni í tengslum við sýninguna Gálgaklettur og órar sjónskynsins sem stendur yfir á Kjarvalsstöðum. Lagt er upp frá bílaplaninu við Hraunsvík nærri Sjálands- og Ásahverfum kl. 20. Boðið er upp á rútuferð frá Grófarhúsi kl. 19.30.
Kynntu þér dagskrá kvöldganganna