Sýning Salóme Fannberg „Segðu það með þangi“ stendur yfir á Reykjavíkurtorgi í aðalsafni, Tryggvagötu 15.
Sýninging opnaði föstudaginn 15. júní og stendur hún til 8. júlí.
Þetta er önnur sýningin sem Salóme opnar á þessu ári, sú fjórða frá því að hún kom heim eftir langa dvöl erlendis. Salóme hefur ætíð verið forvitin og óhrædd að fara nýjar slóðir og nýtur sín vel við að glíma við ný vandamál. Þangið og ullin hafa lengi átt samleið með henni, eða næstum frá byrjun á listamannsferli hennar.
Myndverkin hafa allra flest verið unnin eftir heimkomuna á árunum 2007-2012.
Heimasíða Salóme er www.salomefannberg.wordpress.com Einnig eru upplýsingar um Salóme á www.umm.is
Sýningin er opin á afgreiðslutíma safnsins sem er mánudaga-fimmtudaga kl. 10-19, föstudaga kl. 11-18 og um helgar kl. 13-17.