Fimmtudaginn 21. júní verður upplýst hver hlýtur Blóðdropann, glæpasagnaverðlaun Hins íslenska glæpafélags, fyrir bestu glæpasögu ársins 2011. Verðlaunaafhendingin fer fram í aðalsafni, Tryggvagötu 15 og hefst hún kl. 17. Verðlaunabókin verður jafnframt framlag Íslands til Glerlykilsins, norrænu glæpasagnaverðlaunanna, á næsta ári. Allir eru velkomnir. Boðið verður upp á léttar veitingar.
Brakið eftir Yrsu Sigurðardóttur Einvígið eftir Arnald Indriðason Feigð eftir Stefán Mána Klækir eftir Sigurjón Pálsson Litháinn eftir Þorlák Má Árnason Lygarinn eftir Óttar M. Norðfjörð Myrknætti eftir Ragnar Jónasson Ómynd eftir Eyrúnu Ýr Tryggvadóttur Samhengi hlutanna eftir Sigrúnu Davíðsdóttur
Blóðdropinn, hin íslensku glæpasagnaverðlaun voru afhent í fyrsta sinn haustið 2007. Hér er hægt að kynna sér verðlaunahafa Blóðdropans