Ertu á leið til Parísar eða áttu góðar minningar þaðan? Kíktu þá á Facebooksíðuna okkar. Elsa Guðmundsdóttir bendir á og fjallar um skáldsögur sem gerast í París.
Elsa er mikil áhugamanneskja um lestur og bókasöfn og ákvað að bjóða fram krafta sína í sumar til að skrifa um bækur fyrir Facebooksíðu safnsins. Hún mun skrifa um bækur á 7-10 daga fresti og taka ákveðið þema fyrir hverju sinni.
Elsa vinnur þetta algjörlega í sjálfboðavinnu og kunnum við hennar miklar og góðar þakkir fyrir.
Lesið um bækur sem gerast í París hér