Sumarið 2010 fór pólverjinn Piotr Mitko í sex vikna hjólaferð um Ísland. Það er í sjálfu sér ekki í frásögur færandi, en nú er Piotr kominn aftur til landsins með hjólið og heimildamynd um síðustu ferð í farteskinu. Myndin verður sýnd í Borgarbókasafninu, Tryggvagötu 15, mánudaginn 9. júlí kl. 17.30. Eftir sýninguna verður hægt að spjalla við hjólagarpinn og kvikmyndagerðamanninn Piotr um hjólaferðir hans um landið.
Hér má sjá stiklu fyrir myndina: