Á fimmtudaginn næstkomandi, 12. júlí, verður Borgarbókasafnið með kvöldgöngu sem ber heitið „Fyrir ofan garð og neðan“. Gengið verður um gróna reiti í miðbæ Reykjavíkur og dregnar fram bókmenntir sem þangað sækja rætur. Lagt er upp frá Grófarhúsi kl. 20. Enginn aðgangseyrir og allir eru velkomnir!
Sjá nánar um kvöldgöngur sem Borgarbókasafnið, Ljósmyndasafn, Listasafn og Minjasafn Reykjavíkur standa fyrir í sumar: Kvöldgöngur