Sóla og Æringi brugðu sér bæjarleið til Akraness að segja söguþyrstum börnum sögur. Það var auðvitað sól og blíða eins og alltaf þegar Sóla mætir á bæjarhátíðir. Akranesbær átti semsagt afmæli og svo voru Írskir dagar einnig á dagskrá.
Það var bókasafnið á Akranesi sem átti hugmyndina að heimsókn Æringja og lagði því Æringi á túnblett fyrir utan bókasafnið. Yfir 100 börn og fullorðnir sátu svo í grasinu og hlustuðu á sögur og sungu sólarsöngva. Síðan fóru börnin í röð en allir vildu skoða Æringja að innan og helst fá fleiri sögur. 12-14 börn stoppuðu svo örstutta stund inní bílnum og fengu smá sýnishorn af því hvernig venjuleg sögustund fer fram hjá leikskólabörnum Reykjavíkur. Mörg könnuðust við Sólu sögukonu og Æringja úr sjónvarpinu og söknuðu þess að fá ekki að hitta Kára Krumma en hann lét ekki sjá sig að þessu sinni. Hann var örugglega að hnuppla glingri í laupinn sinn.
Hér koma myndir af þessum sólskinsdegi ...